miðvikudagur, 11. júní 2008

Verð bara að skella einni mynd inn :)

Vorum úti í labbitúr í gærkvöldi og ég var með myndavélina með. Var að fara að taka mynd af þessu blómi þegar Píla allt í einu var komin inní rammann svo ég smellti af. Fókusinn er þó ekki alveg eins og ég hefði viljað hafa hann en myndin er engu að síður skemmtileg :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Krúttleg mynd :)

Kveðja Kristín, Aris og Sóldis
www.geisla.blogg.is

Nafnlaus sagði...

Frábært að sjá svona skemmtilegar myndir og gaman hvað ykkur gengur vel. Með að bíta í börnin þá má prófa að skrækja hátt, það gera hvolparnir sjálfir ef þeir eru bitnir og auðvitað er þetta bara leikur hjá þeim. Bestu kveðjur.
Anna í Hlíð og hundafjölskyldan.