föstudagur, 2. maí 2008

Krúttíbollan :)

Hún Píla bara orðin 3 mánaða og búin að vera hjá okkur í rúman mánuð. Gengur rosa vel og hún er held ég bara rosa ánægð hjá okkur. Hún fríkkar með hverjum deginum og verður auðvitað skemmtilegri eftir því sem hún þroskast og það verður auðvitað þægilegra að þurfa ekki að fylgjast með henni alltaf! Hún er bara æðisleg :)
Hér er mynd af henni sem var tekin í gærkvöldi þegar við vorum að horfa á TV-ið og hún naut þess að naga eina beinflöguna :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Píla er algjör krúsídúlla!!!!!!! Til lukku með svona sæta skvísu!!
Kveðja, Arna Bryndís

Nafnlaus sagði...

Langaði bara að koma því á framfæri hvað þið takið góðar og skemmtilegar myndir en fyrirsætan er líka voða fín kveðja frá hundunum á Hvolsvelli